22.2.2019 | 20:46
Íslenska þjóðfylkigin styður kjarabaráttu stéttafélaga.
Það er greinilegt að ríkisstjórn landsins er ekki að skilja hvað þeir eru búnir að vera ábirgðalausir í sinni nálgun um leiðréttingu kjara, gagnvart verkafólki í landinu. Greinilegt er að Bjarni Ben hefur ekki hugsað út í þau orð stofnfélaga Sjálfstæðisflokksins „ stétt með stétt“ þegar hann lagði til að taka á móti kjarabótum handa yfirstétt landsins upp á hundruða þúsunda á mánuði er vill leiðrétta smánarlaun verkafólks upp á nokkra þúsundkalla, sem þó á ekki að taka gildi fyrr en á nokkrum árum. Það er tilgangslaust fyrir alþíðu landsins að taka á móti slíku, því það gerir ekkert fyrir það, það lifir ekki af þeim tekjum eftir sem áður.
Það er nauðsynlegt að endurforrita alþingismenn og ráðherra sem koma með slíkar tillögur, það er á þeirra ábyrgð hvernig staðan er í dag. Hefðu þeir komið í veg fyrir gengdalausar hækkanir til handa útvöldum ríkisstarfsmönnum og ráðamönnum þjóðarinnar, svo ekki sé talað um fjármálastarfsemina í landinu, væri þjóðin ekki í þessum átökum í dag. Það liggur nefnilega ekki upp á verkalýðshreyfinguna og Vinnuveitendasamband Íslands að leysa þetta mál, það er og verður á borði ríkisstjórnar Íslands, ellegar verða óraunhæfar hækkanir launa sem leiða til verðbólguskots.
Íslenska þjóðfylkingin leggur til að ríkistjórnin axli ábyrgð í þessu máli, hækki þegar í stað persónuafslátt þannig að þeir sem ekki hafa til hnífs og skeiðar greiði ekki skatta. Það eru nægir fjármunir til að koma veglega til móts við aðila vinnumarkaðarins án þess að hér fari allt á hvolf.
Guðmundur Karl Þorleifsson formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.