Er ætlunin að færa bændastéttina í erlent eignarhald.

Skil ekki hvernig skinsamir menn geta haldið því fram að það skipti ekki máli hvort landeigendur séu með Íslenska kennitölu eða ekki og hvort búsetuskilyrði á Íslandi sé grundvöllur til eignahalds lögbýla. Í fyrsta lagi þá greiða þeir sem ekki eru með lögheimili og kennitölu á Íslandi hvorki skatta né skyldur til samfélagsins af þeim tekjum er þeir hafa af landareignum sínum. Einungis greiða þeir fasteignagjöld, en sömu menn nota það óspart að telja allan þann kostnað, er þeir hafa af eignunum til frádráttar svo þeir geti lækkað skatta í skráðu heimalandi. Hér er komin mismunun gagnvart Íslendingu sem hér búa, eða er það meiningin að Íslendingar þurfi að færa lögheimili sitt til að geta verið samkeppnishæfir sem bændur á Íslandi, hvert stefnum við? Við það gætu bændur fengið alskins styrki og fyrirgreiðslur í því landi sem þeir eru með lögheimili, lægri skattbyrði og svo framvegis. Er það virkilega stefna Íslenskra ráðamanna að þurrka út bændur með Íslenskan ríkisborgararétt, eða að gera Íslenska bændur að leiguliðum erlendra auðmanna?
Nú er tími til að skokka þessa vitleysu upp, Íslenska þjóðfylkingin er með skýra stefnu í þessum málaflokki sem og öðrum. Við leggjum til að farið verði eftir Norskum lögum í megin dráttum. Ef það samrýmist ekki EES reglugerð, þá er ekkert annað í stöðunni en að segja skilið við það samband og gera tvíhliða samning við EB sem og aðrar þjóðir. Það kemur ekki til greina að missa allt niður um sig, til þess eins, að þóknast samböndum er setja samfélag okkar í rúst og læðist bakdyra megin inn í samfélagið, til eyðileggingar og yfirtöku landsins. Þar má telja, orkumál, vatnsnýtingarmál og svo framvegis. Eini flokkurinn sem er tilbúinn að standa í lappirnar gegn þessari þróun, er Íslenska þjóðfylkingin. Nú skorum við á almenning að fylgjast með þeirri lagasetningu, sem rætt er um að setja á haustdögum. Alþingi þarf aðhald svo þeir klúðri ekki þeirri lagasetningu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband