Er iðnám lítilsvirt á Íslandi.

Það vakti ekki mikla athygli þegar meistari í byggingaiðnaði, sem lokið hafði ýmsum námskeiðum hjá lögregluembætti, sem og björgunar námskeiðum, skildi verða hafnað þar sem hann hafði ekki stúdent próf og komst þar að leiðandi ekki í lögregluskólann. Þetta kemur manni til að hugsa, hversu lítilsvirt iðnnám er af stjórnvöldum. Líta stjórnvöld á iðnmenntun sem annars flokks nám, sem einungis er upphaft í tækifærisræðum án meininga.
Öll þau ríki sem eiga eitthvað undir sér, eru með öfluga iðnmenntun og leggja mikla áherslu á raungreinasvið. Þau telja öll að styrkur þessa grunns í heimalandi sínu, sé þjóðinni best borgið. Það hefur aftur á móti færst í vöxt, ekki bara hér á Íslandi, að bókmenntun er hafin yfir menntun á sviði sköpunar, þar með talið iðnmenntunar. Það er gömul saga en ekki ný, að þeir sem mennta sig á bókmennta sviði eru frekar starfandi hjá hinu opinbera kerfi sem litlu eða engu skilar í rauntekjum fyrir samfélagið. Aftur á móti eru þeir sem mennta sig á raungreina sviði, frekar til þess fallnir að vinna og skapa á grunnsviði samfélagsins, það er hornsteinn samfélagsins þar sem fjármagnið verður til og heldur samfélaginu uppi. Það er gömul saga en ekki ný, að flest ríki falla þegar yfirbyggingin er orðin stærri en grunnurinn.
Það er mikill misskilningur að halda, að leysa grunnþörfina með aðkeyptu vinnuafli leysi vandan. Slíkt er þjóum yfirleitt til mikils skaða, þó tímabundin hagsæld sjáist á pappírum en skapar mörg önnur vandamál svo ekki ekki sé talað um flóð gjaldeyris út úr samfélaginu til uppruna landa viðkomandi starfshópa. Þar með tapast einnig sú þekking og reynsla, sem nauðsynleg er til að getað stjórnað viðkomandi verkefnum, verði öll þekking flutt úr landi. Því er það nauðsyn að gera verkmenntun hærra undir höfði, meta hana að verðleikum svo hvati til að styrkja undir grunnþarfir samfélagsins tapist ekki, heldur auki við hagsæld þjóðarinnar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband