25.7.2024 | 09:43
Þegar bæjarstjórn og bæjarstjórar gefa út yfirlýsingar um menntun barna!
Mér áður brá!, stóð einhverstaðar og nú er svo komið að stjórnendur sveitafélaga telja það vera megin verkefni sitt í skólum landsins að kenna hin ýmsu framandi tungumál, vegna þess að ef til vill mun viðkomandi barn fara til síns heima og vera á eftir í námi vegna veru sinnar á Íslandi! Er það virkilega á ábyrgð íslendinga en ekki foreldra viðkomandi barna að halda þeim við í sinni móðurmálskennslu, til að tryggja öryggi þeirra ef svo vildi til að þau myndu yfirgefa Ísland og halda til síns heima, eða er það á vegum sveitafélags sem ekki getur einu sinni tryggt að börn komi læs úr grunnskólum á því móðurmáli sem þau búa í?
Ég held að sýndarmennska landsmanna og þá sér í lagi menntastefna þessa lands hafi farið niður með skólpinu undan farin ár og er þar fyrst og fremst að kenna stjórnvöldum. Okkur ber í fyrsta lagi engin skilda til að kenna fólki af erlendu bergi borið þeirra tungumál, það er á ábyrgð foreldra og þá þess samfélags sem þau vilja halda tryggð við og ætti að vera umhugsunarefni, hvers vegna lögð sé svona mikil áhersla á að kenna þeim sitt eigið tungumál í stað þess að koma okkar tungumáli skilmerkilega til skila, svo viðkomandi geti samlagast okkar samfélagi betur, en verði ekki utanveltu og óánægja grasseri meðal þessara barna þegar á framhaldsskólastig kemur. Hvernig væri að það fjármagn sem lagt sé til skólastarfs fari í að gera börnum kleift að aðlagast því samfélagi sem þau eru að flytja til, en ekki sólunda fjármunum í eitthvað sem ef viðkomandi einstaklingar vilji handa tengslum við sína átthaga geta aflað sér þeirra menntunar þegar lengra sé komið. Það er ylla farið með skattfé landsmanna að stærsti hluti barna komi svo ylla undirbúið eftir grunnskóla að þau eru ekki fær um að geta aflað sér framhaldsmenntunnar! Þetta staðfestir Písakönnun og eru íslensk skólayfirvöld með allt niður um sig þegar kemur að forgangsröðun innan skólakerfisins, en það má ekki gleyma þeim er mesta ábyrgð bera á þessum hlutum það eru nefnilega stjórnendur sveitafélag og alþingismenn, sem eru og hafa verið á veruleika fylliríi sem er að skila þessum árangri. Ætli það geti ekki verið víða í stjórnkerfi okkar Íslendinga sem staðan sé svipuð og í skólakerfi landsmanna!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/25/fjoldi_tungumala_askorun/
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 38646
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir þetta. Að sjálfsögðu á skólakerfið ekki að rækta tungu útlenskra barna. Eins og þú bendir réttilega á er það hlutverk foreldra. Íslenskir foreldrar sem búa í útlöndum hafa það í hendi sér að viðhalda íslenskunni, engum skóla dytti í hug að gera það.
Sveitarstjórnarmenn geta ekki einu sinni sinnt réttindum íslenskra barna í skólakerfinu svo þetta er heimska í versta falli að tala svona eins og þeir gera.
Helga Dögg Sverrisdóttir, 25.7.2024 kl. 12:20
Sæl Helga, já því miður hefur skólakerfið þanist út í allkyns vitleysu sem ekki á að vera á þeirra könnu, svo ekki sé talað um að kerfið er ekki að sinna skildum sínum sem skildi samkvæmt skoðannakönnunum. Sorglegt að Íslenskir nemendur skuli þurfa að líða fyrir gæluverefni og meðvirknissjónamið þeirra er eiga að sinna lögbundnum verkefnum en greinilega gera það ekki.
Guðmundur Karl Þorleifsson, 25.7.2024 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.