28.4.2023 | 16:25
Það er bara ekki í lagi með stjórnmálamenn í dag!
Er aumingjavæðingin farinn að stjórna stjórnmálamönnum svo mikið, að þeir átta sig ekki á því að það eru þeir sem setja reglurnar og lögin, sem fara á eftir og þeirra að framfylgja þeim! Nú er svo komið að Dómsmálaráðherra ætlar sér að borga undir afturendann á efnahagsflóttamönnum, í stað þess að gera flugfélög ábyrg fyrir að flytja þetta afætufólk sem er stutt af afætuiðnaðinum sem kallast Rauði kross Íslands úr landi. COMM ON!!!
Það er löngu komin tími til að setja hnefann í borðið og reka þetta fólk sem hingað kemur, úr landi strax, landið hefur ekki efni á meiri blekkingaleik vinstri manna, sem eru leynt og ljóst að setja þjóðina á hausinn ásamt sjálftökufólki Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin ætlar greinilega ekki að vakna við óráðsíu meirihlutans í Reykjavík, heldu feta í sömu spor, þar sem almenningur í landinu verður látin borga brúsann. Skuldir Reykvíkingar eru orðnar slíkar að það tekur nokkrar kynslóðir að greiða þær niður, þetta eru það sem foreldrar í Reykjavík eru að bjóða börnum sínum upp á, ætla landsmenn að gera slíkt hið sama!
VAKNIÐ AF YKKAR ÞYRNIRÓSASVEFNI, ÞAÐ ER LÖNGU KOMIN TÍMI TIL ÞESS! Ef fram heldur sem horfið verður ríkisstjórn landsins búin að selja sjálfstæði þjóðarinnar fyrir skotsilfur, og þjóðinni blæðir út á örfáum árum. Það er komin tími til að moka út flórinn á alþingi Íslending, þar þarf að skipt út landráðafólkinu, er þar situr!
SKORA Á ÞINGMENN SEM VILJA LANDINU VEL AÐ FELLA FRUMVARP UTANRÍKISRÁÐHERRA, ÞAÐ STENST EKKI STJÓRNARSKRÁ OG VEKUR FURÐU AÐ UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS SKULI EKKI VERA BÚINN AÐ KALLA EFTIR SKÍRINGUM Á HENNAR FRAMFERÐI!
Lifið heil.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-26-allt-ad-3000-evrur-fyrir-ad-yfirgefa-landid?fbclid=IwAR39jDi2UW8WKIsQsPnED9grIP_mb66WIUrh5o3By_4UT6KmNqryQ8HTI4Q
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það stefnir í, með stuðningi þingheims, ríkisstjórnar og embættismanna, að íslenska þjóðin verði í minnihluta í landi okkar Íslandi eftir örfáa áratugi. Sofandaháttur þingmanna er ærandi, þeir láta alvörumál sem snerta alla þjóðina líða hjá án þess að taka þau til alvarlegrar umræðu. Svo falla atkvæðin eftir pólitískri línu og enginn þorir að láta til sín taka úr ræðustól eða með því að greiða atkvæði sem flokksforustunni fellur ekki að geði.
Eini maðurinn sem þorir að berjast fyrir þjóðina og lýðræðið í landinu er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins en forusta flokksins reynir að sniðganga hann. Arnar Þór Jónsson á heiður skilinn fyrir baráttu hans fyrir land og þjóð.
Ég hef alltaf fundist Bjarni Ben ekki vera heill í afstöðu sinni gegn aðild að ESB, enda hefur hann aldrei lýst því yfir að við ættum ekkert erindi þangað inn, hann hefur alltaf sagt að það væri ekki tímabært, en með samþykki á frumvarpi Þórdísar Gylfa er nánast búið að innlima okkur í ESB. Það yrði landráð og þyrfti að taka á því sem slíku.
Tómas Ibsen Halldórsson, 28.4.2023 kl. 23:42
Sammála þér Tómás Íbsen Halldórsson, það er sorglegt að verða vitni að slíku landráðahyski sem nú situr á alþingi Íslendinga, er vill koma landinu undir nýlenduherra ESB þjóða. En við hverju er annars að búa, ráðherrar fylktu liði til að hlýða á óhörnuð unmenni sem ekki eru einu sinni orðin sjálfráða, því ekki þótti þeim tímanum betur varið í að yfirfara það sem skiptir þessi börn til framtíðar. Bullið rær ekki við einteiming hjá þessu liði, en það sorglegast er að þjóðin kýs þetta hyski til að gæta hagsmuna þeirra og því má segja að þjóðin á ekki betra skilið.
Guðmundur Karl Þorleifsson, 29.4.2023 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.