Kolsvört spá formanns VR.

Það hlýtur þá að hlakka í fólkinu sem vill rústa samfélaginu Íslandi! Þarna á ég við flesta sem á alþingi sitja enda hafa þeir ekki dug né kjark til að koma skikki á hlutina. Þarna fara fremstir í flokki ríkisstjórnaflokkarnir Sjálfstæðis, VG og Framsóknarflokkur, sem að sjálfsögðu bíða tækifæris til að geta borðið ofan af eins og 9000 heimilu samanber ein og hrun útkoman var, til að setja undir hælisleitendur. Þá koma Viðreisn, Samfylking, Flokkur fólksins og Pírata til með að stíga inngöngudans ESB- arðránsins, af mikilli gleði. Íslendingar bölva við kaffiborðið því það verður það eina sem þeir eiga eftir að hafa efni á, ef þeir koma ekki til með að koma þessu arðránsliði út úr alþingishúsinu.
En og aftur eru Sjálfstæðismenn komnir á kaf í að selja Ísland, landráðastefna ríkistjórnarinnar undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, styður að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkinn í að afhenda á silfurfati sjálfstæði þjóðarinnar til handa ESB, og fer nú Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra með aðalhlutverk í leikritinu. Orkupakka 3 var komið í gegn eftir að Íslenska þjóðfylkingin sendi kæru til Umboðsmanns alþingis, en hann var ekki meiri bógur en það, að hann gaf þáverandi sem er núverandi ríkisstjórn tækifæri að koma þeim afsalsgjörningi í gegnum þingið, með að setja það í reglugerð í stað laga, svo ekki væri unnt að taka kæruna fyrir!
Á þessum tíma sendi Íslenska þjóðfylkingin öllum alþingismönnum Orkupakka 4, sem var þá að koma út úr samþykkt og vissu þeir þá hvað beið okkar. Núverandi Utanríkisráðherra ætla að koma EES samningum í gegnum þingið svo ríkisstjórnin geti nú en frekar innleitt Orkupakka 4, stundað eignarupptöku, sem og að taka sjálfvirkt alla lagapakka ESB inn. Hjálagt er athugasemdir Stefáns Más og Friðriks Árna, sem voru hunsaðar við samþykkt Orkupakka 3 og er enn meiri ástæða til að hafna frekara samspili sem við höfum engin áhrif á sem sjálfstætt ríki, því hefur Íslenska þjóðfylkingin lagt það til að við segjum skilið við EES samningin, sem er barn síns tíma, en taka þess í stað tvíhliða viðskiptasamning við ESB án skilyrða um að við þurfum að hlíta lagaumhverfi þeirra. Nýjasta dæmið eru skattar á okkar flugsamgöngur, næst verður það skipasamgöngur og hvað verður það þar á eftir. Það er komið nóg af þessari undanlátsemi stjórnvalds, ef alþingismenn treysta sér ekki til að standa í lappirnar gegn yfirgangi erlendra ríkja þá eiga þeir að biðjast lausnar, það er til fólk sem getur staðið í lappirnar. Þjóðin þarf að vakna, hér eru atriði sem Íslenska þjóðfylkingin hefur varað við frá stofnun, nú er komin tími til að gera eitthvað í málinu!

https://www.dv.is/eyjan/2023/4/9/ragnar-thor-med-kolsvarta-spa-segir-ad-astandid-eigi-bara-eftir-ad-versna/
Nú er komin tími til að verja sjálfstæði landsins, sjálfstæðisbarátta Íslands er hafin í annað sinn, ekki við erlendan innrásarher, heldu alþingismenn sem sverja eiðskareið, en eru greinilega ekki starfinu vaxnir!

Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvers vegna heldur þú því fram að flokkur sem hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu um að afturkalla ESB-aðildarumsóknina frá 2009, muni "stíga inngöngudans ESB- arðránsins"?

Sjá hér til frekari upplýsingar: Tillaga til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu

Guðmundur Ásgeirsson, 9.4.2023 kl. 22:33

2 Smámynd: Guðmundur Karl Þorleifsson

Guðmundur Asgeirsson, þú þarft að skýra við hvaða flokk þú átt við, svo hægt sé að svara þér!   Það er ekki nóg að sýnast og vera tvöfaldur í roðinu, eins og sumir flokkar virðast ætla að stunda núna.

Guðmundur Karl Þorleifsson, 10.4.2023 kl. 15:17

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það blasir við um leið og smellt er á tengilinn á tillöguna: Flokkur fólksins.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.4.2023 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband