8.4.2023 | 11:23
Niðurrif á þjóðkirkjunni á sér engin takmörk.
Ég tel rétt að benda á þetta, þar sem Íslenska þjóðkirkjan á í vök að verjast, með vanhæfan biskup í fararbroddi! Þegar slíkt á sér stað er einfalt að vega að Kristinni trú, sem fólk ætti að gera sér grein fyrir að er samofin samfélagi og menningu þjóðarinnar. Minnihlutahópum hefur tekist að smána þessa menningu, svo mjög að hætt er að kenna þjóðtrú landsins í skólum landsins, vegna þess eins að ekki megi gera upp á milli fámennings hópa og þeirra sem eru í miklum meirihluta þjóðarinnar. Íslenskir stjórnmálamenn eru orðnir svo veiklaðir að þeir standa ekki lappirnar þegar kemur að því að vernda menningu landsins og þá er hafa byggt upp þetta samfélag og veitt þeim umboð til að gæta hagsmuna sinna, sem þeir hafa stundað að hunsa.
Nú er ein mesta hátíð Kristinna manna gengin í garð, og þegar litið er yfir fréttamiðla kemur ýmislegt í ljós er varðar áróður gegn Þjóðkirkju landsins, tek ég hér aðeins þau brot er ég varð í fljótu bragði var við. Fólk lætur sér svona í léttu rúmi liggja, „ en dropinn holar steininn „ eins og segir í góðu máltæki, sem vonandi má enn nota í rituðu máli, vegna öfgahópa einhverskonar!
RÚV réðst á vaðið með sinni árlegur niðurlægingu á Kristinni trú og var Páskahátíðin en og aftur valin, þar sem hirðfíflið fyrrverandi Borgarstjóri var uppdubbaður til að kasta rýrð á frelsarann og Kristna trú. Viti menn, auðvitað kemur síðan RÚV til með að útvarpa messu frá þeim söfnuði sem þeir hafa lagt sig í líma við að fordæma, niðurlægja og útsmá. Þetta á að vera fréttamiðill allra landsmanna, en móðganir við meirihluta þjóðarinnar á sér engin takmörk.
https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2023-04-06-rosalega-gaman-ad-gera-grin-ad-kristinni-tru
Þá kom grein í mbl.is í morgun eftir ein prest kjánann Jónu Hönnu Bolladóttur, þar sem hún gerir að vísu góða grein fyrir stöðu Siðmennt, sem finnur sér alltaf eitthvað til að agnúast út í þjóðkirkjuna, en missir sig þegar hún segir „ Hún segir að þar sem trúarbrot og mismunandi menning þrífist saman í sátt og samlindi náist að gera stórkostleg samfélög.“ Mér er spurn hvar í veröld vorri er slíkt samfélag? Í fyrsta lagi er trú sem henni er fullkunnugt um og kallast hafi hún ekki skrikað fótur um þá trú og menningu, er kallast „Islam – trú „. Þar eru allir aðrir en sem eru meðlimir og iðka Íslam nefndir „ Kafírar „ og er Íslam- trúuðum gert að fylgja boðskapnum um að fara ylla með, afvega leiða, taka af lífi og hvað annað sem muni þókna Alla, sem er þeirra guð. Þetta má lesa í þeirra trúarbókum sem eru þrjár. Þar er Kóraninum ( Quaran), talin mikilvægastur, en margt af því sem ritað er, er ekki samræmanlegt við Kristna, né aðrar hófsamar trúariðkanir. Draumórar sem fólk sem á að standa með Kristinni trú og varðveita hana, bera út fagnaðar boðskap Krist á ekki að beina afvegaleiddum hugmyndum til eigin safnaðar!
Svo var það en og aftur Fríkirkjan sem greinilega á í tilvistarkreppu sem missir allt niður um sig þegar kemur að jólum og páskum, og nú með aðdróttanir um að Kristin kirkja sé að stela frá þeim fermingarbörnum. Annarri eins vitleysu hef ég aldrei heyrt, eru það ekki frekar foreldrar sem ákveða hvort barn fermist í þessum eða í öðrum söfnuði. Svo fara þeir offari yfir því að það kosti önnur börn sem ekki eru innan viðkomandi safnaðar, aukalega fyrir niðurgreiddar ferðir fyrir fermingarbörn innan safnaðarins. Þeir hefðu frekar átt að spyrja, af hverju viðkomandi söfnuður taki ekki aukagjald fyrir að ferma viðkomandi, þar sem hann væri utan safnaðar og hefði ekki greitt í söfnuðinn, það hefði ég gert! Allstaðar í okkar nágrannaríkjum sem við berum okkur við, eru börn utan safnaðar látin greiða auka gjald, þá eru einnig greidd aukagjöld við jarðafarir, giftingar, skírnir og aðra þjónustu þar sem söfnuðurinn er ekki látin bera kostnað af fólki sem ekki er innan safnaðarins, sem mér finnst eðlilegt. En jú Fríkirkjusöfnuðurinn er alltaf samur við sig þegar kemur að peningamálum, þeir vilja að allir borgi til þeirra en sjá ekki græðgi blinduna í eigin augum.
https://www.visir.is/g/20232400029d/prestar-grafar-vogs-kirkju-hafna-al-farid-a-sokunum-um-stuld-a-fermingar-bornum
Höfundur er ekki meðlimur í Þjóðkirkju Íslands, en er Kristinnar trúar!
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrir mörgum árum rann á mig sterklegur grunur um að annarleg öfl væru við stjórnvöl þjóðkirkjunnar.
Ekki get ég skynjað þau sem Kristileg öfl, en frekar sem and-kristileg öfl.
Ef kirkja á að vera Kristileg, þarf hún að fara að fordæmi Krists.
Kristur sýndi ekkert fordæmi fyrir ungbarnaskírn, fermingum og hvíldardegi á sunnudegi.
Hann nefndi heldur ekki, að hætta ætti að fylgja mataræði G.T !
Hann var með karlmenn sem uppistöðu að lærisveinahópi sínum, og því er óskiljanlegt hversu margar konur eru ríkjandi í þjóðkirkju.
Loncexter, 8.4.2023 kl. 19:03
Ég ætla að svara þér þó svo að þú teljir þig ekki þess megnúan að koma undir nafni, en venjulega svara ég ekki slíkum póstum. Í fyrsta lagi tek ég undir að Kristileg hegðan stjórnenda Íslensku þjóðkirkjunnar er ekki sú sem ég hefði talið að ætti að vera. Vart verður hjá því komist að taka undir and-Kristileg svo vægt sé til orða komist. Þetta held ég að hafi verið aðal ástæða þess flótta úr Þjóðkirkjunni yfir í minni söfnuði. Þá má segja að alþingismenn hafa sofið á verðinum um að uppfylla þann samning um að vernda Kirkjuna. Má þar nefna að undanlátsemi gagnvart minnihluta-trúar- hópum gagnvart kennslu í skólum landsins er með eindæmum, en þetta er svo sem þekkt í fleiri löndum. Ég tel að aðskilnaður trúfélaga og ríkis hverju nafni sem það nefnist sé af hinu góða, því þá munu þeir sem vilja iðka sína trú standa betur með henni eins og t.d., í Bandaríkjunum. Kristur var skírður snemma, samkvæmt ritum sem ekki hafa fengist að vera í Biblíunni, sjá lokuð rit Vatikanins, því miður man ég ekki númerið á þessum ritum eins og er, en þú ættir að geta komist að því, og sé ég þar af leiðandi ekki neitt athuavert við, ef foreldrar vilji skýra sín börn hverra trúar sem þau eru snemma, er þetta fyrst og fremst gert af trúarlegum ástæðum sem þú ættir að þekkja, það er að foreldrar vilja með þessu búa til vernd fyrir sína afkomendur í trúarlegu tilliti. Þá kemur fermingin sem er val barnsins um hvort það vilji staðfesta trúnna, eða eitthvað annað eða ekki neitt, þá getur hver sem er óskað að standa utan trúfélaga samk. lögum landsins. Í raun var hvíldardagur á laugardegi samk. Gamla testa mentinu og öðrum fornum ritum. Kristur gerði samt skilgreiningu á hvíldardeginum sem hafði verið afvegaleidd í tímanna rás, en það var að " hvíldadagurinn er fyrir manninn en maðurinn ekki fyrir hvíldardaginn" þetta getur þú einnig flett upp í hinni helgu bók! En og aftur held ég að þú þurfir að lesa hina helgu bók betur, þar fordæmir Kristur ekki mat, ekki heldur að menn skildu uppskera á helgidögum. Þarna erum við komnir að þeim megin mismun á Kadólskri trú og Lúteskri trú, en hvort tveggja tel ég ekki aðal atriði í trúariðkun Kristinna manna, vilji menn hafa einhverja sérvisku sem þeir lesa út úr Biblíunni þá helst Guðspjöllunum og það sem á eftir kemur þá tel ég það ekki skipta máli, heldur að menn leitist við að virða þann kærleika eftir fremsta megni sem boðskapur Krist var. Þegar þú getur um að hann hafi einungis verið með karlmenn sem lærisveina, er því til að svara að með honum fylgdust fjöldi kvenna einnig, en a þessum tíma var karlaveldi og þurfa menn að skoða þetta í því samhengi. Þá má nefna það að hann stóð í vegi að kona yrði grítt eins og þú sennilega hefur lesið, en það var fátítt að menn stigu fram til að vernda þær a þessum tíma, hvað þá ef þær hefðu verið bornar sakir sem hórlísdræsur. Ég ætla ekki að hafa þetta frekar, en bið þig að koma undir réttu nafni næst.
Guðmundur Karl Þorleifsson, 8.4.2023 kl. 20:18
Astæðan fyrir því að margir skrifa ekki undir nafni, er oftast sú, að þá fara menn að ,,jarða" viðkomandi með einhverju sem hann gerði í fortíðinni. (ekki að segja að þú myndir gera það)
Þeir sem eru í einhverjum vafa með hvíldardaginn, má benda á bók sem heitir; Sigur kærleikans (Barátta um borð)
Bók sem flestir ættu að lesa áður en kaþólska kirkjan sendir fulltrúa hingað sem eyða öllum eintökum sem enn eru á lausu.
Loncexter, 9.4.2023 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.