Er fæðing frelsarans að gleymast!

Nú þegar stærsta hátíð Kristinna manna gengur í garð, er fátt sem minnir á það, hvað það er sem þessi hátíð gengur út á. Flestir eru uppteknir af glingri og glamúr sem og afleiðu sem nefnist jólasveinn. Hvað ætli það séu margir sem hafi í raun hugleitt, hversu mikilvægt það er að frelsari vor Kristur skildi fæðast um þetta leiti og við tileinkuðum okkur góða siði og kærleika gagnvart öðrum. Ætli það sé orðin pína fyrir biskup landsins að þurfa að halda jólamessu og flytja þann boðskap sem Kristnin er byggð á?
Það eru eflaust margir sem fagna hér á Íslandi yfir því að Kristin gildi skuli vera á undanhaldi og vinna sem engin sé morgundagurinn að því að brjóta þessi gildi niður. Meira að segja þingmenn víla það ekki fyrir sér að ganga gegn þessum gildum þó svo að þeir hafi svarið hollustueið að Íslenskri stjórnarskrá og eru þar með að brjóta lög landsins! Það þykir ekki tiltökumál hvernig samfélagið okkar hefur náð þeim árangri sem við þó búum við í dag, því þeirra markmið er að grafa undan samfélagi okkar á allan hátt!
Ég tel að Íslendingar þurfi að fara að vakna, því þótt erfitt sé að lifa fyrir suma á þessu landi þá höfum við það nokkuð gott, en það er auðvelt að fara úr öskunni í eldinn. Alþingismenn þurfa að hugleiða það í þessu jólafríi að þeir eru kosnir til að gæta að hagsmunum Íslendinga sem og menningu landsins, ekki síður en að sína skinsemi í stjórnun landsins almennt!
Íslendingar fljótum ekki að feigðarósi, sínum þingmönnum okkar sem og öðrum stjórnendum þessa lands aðhald, það gerum við ekki ef við missum sjálfstæði okkar.
Lifið heil.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband