Þarf að breyta hugsunarhætti Sóttvarnarlæknis og stjórnenda Landsspítala?


Ég hef hugsað um allt það fjármagn og vesen sem Covid hefur haft á samfélagið Ísland, hvort við séum að fórna þeim sem við getum hjálpað og sleppum tökum á því sem við ráðum ekki við, svo ekki sé talað um allan þann kostnað sem til fellur. Er ef til vill betra að eyða opinberu fé i aðra hluti, en gervibólusetningu, sóttvarnarhýsingu, eða eigum við að halda áfram endalausum opinberrum höftum, sem bitna á samfélaginu. Nú vitum við að verði mikil smit í landinu mun sóttin fara eins og eldur í sinu um landið, en fljótlega mundi það mynda hjarðónæmi í landinu þar sem fjöldi landsmann er ekki svo fjölmennur og flestir hafa þegar fengið gervibólusetningu, sem sóttvarnarlæknir telur að gagnist til að menn veikist mun minna en ella. Hvort þetta sé samskonar ómarktæk yfirlýsing eins og sú sem viðkomandi sagði við upphaf bólusetningar sem áróðursbragð, að bólusetningarnar myndu veita hjarðónæmi, er varð greinilega ekki raunin. Almenningur er hættur að trúa á yfirlýsingar þeirra frammámanna sem og Landlæknisembættið þar sem ekki hafa verið með trúverðugar yfirlýsingar.
Hvað gæti gerst ef menn leifðu þessu bara að ganga yfir. Þá myndu að öllum líkindum verða svipuð smit og nú eiga sér stað, það eru í hringum 200 manns á dag, ef til vill myndi þessi hækkun fara í 400 til 500 manns þegar mest lætur, þar yrðu helst fyrir barðinu, það fólk sem er komið með óþreyju í að hitta aðra, fá sér í glas og njóta lífsins. Þetta myndi taka til tölulega stuttan tíma, þá myndi smit í skólum verða meira , þrátt fyrir að sóttvarnaráróðurinn hafi verið að ekki væri hætta á að börn myndu smitast, það verður bara að kyngja því eins og hverju öðru hundsbiti. Því fyrr sem hjarðónæmi nær því gildi, að almenn atvinna og eðlilegt flæði mannlífsins getur gengið sinn eðlilega farveg.
Ég tel tími til komin að það sjúka fólk er þarfnast heilbrigðisþjónustu fái þá þjónustu sem þeim ber, en einbeita ekki allri orku í þjónustu sem stendur ekki undir væntingum. Það hlýtur að vera stefna ríkisstjórnar að koma hagkerfi landsins aftur á réttan kjöl, það gerum við ekki til lengdar með að lama samfélagið með höftum og tilskipunum, sem hingað til hafa engan árangur borið en kostað samfélagið ómældar milljónir og ekki ljóst að það komi til með að skila neinu, heldur einungis lengja í hengingaról landsins.
Formaður ÍÞ.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband