19.8.2021 | 15:16
Eru allir þingmenn Íslendinga bleyður.
Ég er alveg gáttaður á hugleysi þingmanna og þeirra sem í framboði eru til alþingis. Ætlar virkilega engin að þora að stíga fram og mótmæla ætlunum ráðherra þríeykisins, það er Katrínar Jakobsdóttur, Guðlaugar Þórs og Ásmundar Daðasonar, sem eru með allt niður um sig í innflytjendamálum. Nýjasta er að búið er að kalla saman nefnd til að skoða hversu marga eigi að flytja til landsins frá Afganistan, því þau halda að talan sem þau voru með í fyrstu, það er 100 manns sé of vanáætluð, því ábyrgð Íslands sé svo mikil.
Nei!, ábyrgð Íslands er nákvæmlega 0, þar að auki hefur ekki komið fram að nokkur Afgangi hafi sótt um hæli, Nei!, ráðherrarnir ætla sem sagt að senda tilboð út án þess að það sé nokkur sem jafn vel vill koma til landsins. Þau eru meira að segja búin að setja málið í nefnd. HVAÐ ER AÐ ÞESSU HYSKI!!!
Ekki hafa þeir verið svona snöggir þegar vá eða aðstæður Íslendinga eiga í hlut, að missa brækurnar vegna hugsamlegrar ímyndaðrar ábyrgðar sem ég get sagt þeim að er engin. Nei það skal nota þetta yfirvarp til að flytja inn fleiri Islamista, og þar með koma á óeiningu í landinu, sem síðar meir mun koma af stað alkyns átökum. Ísland á að forðast eldinn, því hann verður ekki auðvelt að slökkva, það sjáum við í nágrannalöndunum okkar.
Íslenska þjóðfylkingin hefur varað við þessari þróun frá stofnun, og mun gera það áfram, þó um lævísa leikfléttu ráðamanna sem vinna gegn eigin þjóð sé að ræða. Jón Magnússon skrifar góða grein og bendir á að Albanía hefur boðist til að taka á móti flóttamönnum frá Afganistan, þar fara trúarbrögð og menning saman og væri það kjörin staða fyrir það ástand sem þarna hefur skapast.
Íslendingar bera enga ábyrgð á þessu ástandi, geta landsins er slík að það vantar húsnæði fyrir fólk sem er á biðlista eftir húsnæði og hefur greitt skatta og skyldur til samfélagsins. Þá er húsnæðismál ungafólksins slík að þau komast vart úr heimahúsum með sínar fjölskyldur vegna dýrtíðar. Þessir ráðherrum ber skilda til að huga að þeim málum fyrst áður en loforðaflaumur eyðslu og óráðsíu, sem gæti rústað menningu þjóðarinnar er efst í hugum þeirra.
Enn og aftur munið að það eru að koma kosningar, það er á þina ábyrgð að velja í stóla alþingis og getur engin velt þeirri ábyrgð á annan. Kosningarþátttaka er nauðsyn svo skýr skilaboð komi í ljós hvað þjóðin vill.
Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta eru upp til hópa lobbyistar og populista og meira og minna sponsorað af einhverjum hagsmuna aðilum og
sést best á viðbrögðum krakkans í ferðamálaráðuneytinu við tillögum Sóttvarnarlæknis.
"Algjör uppgjöf að ætla að takmarka fjölda ferðananna", það er bara gargað eins og óþekktarangi en ekki komið með tillögur að lausn.
kv. hrossabrestur
Hrossabrestur, 19.8.2021 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.