18.8.2021 | 11:19
Íslendingar í Kabul!
Nú hefur frést að tvær fjölskyldur „ Íslenskar“ séu í Afganistan. En þegar betur er að gáð, eru þetta fólk sem hefur misnotað góðvild Íslendinga, komu hingað sem flóttamenn og hafa blóðmjólkað kerfið, fengu allt sem landið hafði upp á að bjóða, læknishjálp, lögfræðiaðstoð, húsnæði og svo mætti lengi telja. Þeim var veitt hæli á þeirri forsendu að þeim væri hætta búin ef þeim yrði aftur snúið til Afganistan. VITI MENN ÞESSAR FJÖLSKYLDIUR FÓRU Í SUMARFRÍ TIL HEIMALANDSINS, SEM ÞAU SÖGÐU EKKI GETA FARIÐ TIL VEGNA ÓTTA UM AÐ ÞAU YRÐU MYRT!
Er ekki komin tími til að Íslendingar opni augun og geri þessa atburðarás að viðvörun um að láta ekki misnota hinn almenna statt greiðanda í landinu, þar sem almannatryggingarkerfið hefur ekki húsnæði fyrir fólk af Íslenskum ættum þó um sé að ræða fólk sem sé á forgangslista. Ég bara spyr?
Þessu fólki á ekki að hjálpa eða eiða peningum í til að koma aftur til landsins, heldur ætti dómsmálaráðuneytið að ganga fram og taka af þeim Íslensku vegabréfin. Við höfum ekkert við slíkar afætur að gera!
Það kom fram að ráðherrar ríkisstjórnar eru tilbúnir til að axla einhverja tilbúna ábyrgð, í nafni góðmennsku. Á kostnað hverra er sú góðmennska framkvæmd, er það skattgreiðenda, aldraða og eða öryrkja. Er ekki komin tími til að fréttamenn krefjist svara frá frambjóðendum um þessi mál, eitt er víst að það er að megninu til Íslendingar sem kjósa til þings og því skora ég á þig kjósandi góður að vakna og vera meðvitaur um að greinilegt er að flestir þeir sem í framboði eru nú til þings eru með buxurnar niður fyrir hné þegar kemur að standa í lappirnar fyrir ykkur.
Afganistan ástandið ætla stjórnmálamenn að nota til að rústa íslensku samfélagi og menningu, það er í þinum höndum að koma í veg fyrir það. Það er komin tími til að þú kjósandi góður hugsir nú um afkomendur þína!!
Guðmundur Karl Þorleifsson formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.