Er landið galopið fyrir smituðum, sem ósmituðum ferðamönnum.

Það er greinilegt að Íslendingar eru hafðir að fíflum!!!! Hvernig má það vera að 30 erlendir ferðamenn sem fóru með Herjólfi til Vestmannaeyja séu allir smitaðir. Hvernig er þá eftirlitið með þeim öðrum sem hingað koma. Það er greinilega ekki mark takandi á kröfum stjórnvalda gagnvart eigin þjóð ef landamærin er hriplek. Eru stjórnvöld búin að hleypa fleiri þúsundum smituðum ferðamönnum inn í landið, á meðan gerðar eru ýmsar íþyngjandi kröfur á Íslendinga, þar með talin uppihaldskostnaður vegna ferðamanna sem komast ekki til síns heima vegna þess að þeir séu smitaðir.
Það virðist vera pottur brotin í öllu stjórnvaldsaðgerðum hér á Íslandi. Almenningur kemur til með að missa trú á tilmælum og kröfum sem Íslensk stjórnvöld leggja til, þegar svona er til háttað. Hverjir ætli axli ábyrgð, ríkisstjórn; alþingi; fálkaorðu prýdda þríeykið eða ferðaþjónustan?, Nei ætli almenningur og þá hagvaxtaskapandi atvinnureksturinn í landinu verði ekki sendur reikningurinn. Nú þingmenn hljóta í framhaldinu að krefja hærri launa vegna álagsins, þó þeir séu með hæst launuðu þingmönnum í heiminum og þeir allra hæðst launuðu miðað við fólksfjölda, svo sú miðmið sé notuð.
Svo við snúum okkur aftur að þeim faraldri sem hér er sagður geysa og viðbrögðum við þeirri vá, sem maður er farin að efast um að sé meiri en venjuleg flensa, miðað við viðbrögð stjórnvalda, þá er enn eitt skrítið. Hvernig má það vera að sóttvarnarlæknir leggi það til að stöðva útihátíðar þar sem Íslendingar hefðu komið saman, en á sama tíma hleypi inn fjöldanum öllum af smituðum ferðamönnum? Er ekki komin tími til frétta menn hjóli í stjórnvöld og sóttvarnarlækni og krefji svara. Eða halda menn að það kosti ekki neitt að taka hvert hótelið af öðru undir sóttvarnarhús, ásamt fjölda starfsmanna til að anna þessu heimatilbúna álagi. Varlega áætlað hefði verið hægt að spara í ríkisbúskapnum milljarða króna, sem ríkið mun þurfa að draga með töngum út úr hinum almenna skattgreiðenda og hika ekki við að leyfa uppboð á þeim sem ekki geta greitt brúsann, samanber aðgerðir stjórnvalda eftir hrun. Almenningur þarf að stöðva þessa vitleysu, hún gengur of langt, gera kröfu um breytta stefnu í þessum málaflokki. Ef ekki verður gripið til strangra viðbragða, mun hagkerfið á Íslandi stöðvast fyrr en seinna. Látum ekki stjórnmálamenn leika lausum hala, gerum kröfur!
Það koma kosningar í haust, og þar er það í þínum höndum hvernig þú villt að alþingi líti út. Það eru ákveðnir flokkar sem bera þungan af þessu rugli, látum þá axla ábyrgð. Þeir hafa tíma til að standa í lappirnar, geri þeir það ekki, á ekki að veita þeim brautargengi í komandi kosningum.
Guðmundur Karl Þorleifsson. Formaður ÍÞ

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Harðar takmarkanir á bólusetta strax.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.8.2021 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband