Þegar menn hafa óhreint mjöl í pokahorninu, treysta þeir engum!!!

Nú er svo komið að Biden verðandi forseti USA , getur ekki treyst eigin her, sem hann á samt að vera æðsti yfirmaður yfir. Fyrst treysti hann ekki Trump og þeim er hann studdu, síðan treysti hann ekki Antífa og BLM því hann var búin að nota þjónustu þeirra við uppþot og valdníðslu um gjörvöl Bandaríkin, og nú treystir hann ekki hernum sem hann er búin að smala saman fyrir framan Hvítahúsið þar sem athöfnin um innsetningu forsetans á að fara fram. Hvernig á þessi afglapi sem er greinilega heltekin af heilabilun að fara með stjórnun kjarnorku vopna, hervalds svo eitthvað sé talið upp hér.
Þetta er forustumaður Demokrata sem hafa lagt til, ekki bara einu sinni vantraust á núverandi forseta, heldur tvisvar! Nú hefur viðkomandi Biden krafist þess að allir þeir sem eru í öryggisliði hersins og eiga að gæta hans við innsetningu, skuli skoðaðir, það er hver þeirra pólitíska afstaða sé. Er maðurinn ekki í lagi, ég meina meira en elliær? Demokratar hljóta að leggja til, að valdheimildir Bidens hvað varðar stjórnun kjarnorku, verði afnumdar eins og þeir hafa áliktað gagnvart Trump, sem þó hefur verið mest friðelskandi forseti USA frá upphafi. Þá sögur er ekki hægt að segja um Biden, en í valda tíð hans og Barak O. Bama stofnuðu þeir til fjölda hernaðarátaka, svo vítin ber að varast ef Kratar séu samkvæmir sjálfum sér, en við hin vitum að svo er ekki, þannig að hnappurinn verður ekki tekin af þessum ellismelli, sem hefur verið svindlað inn á æðsta stól Bandaríkjanna.
Þegar maður veltir fyrir sér umfangi þess er Biden krefst til að verja sig við innsetningu, veltir maður upp þeirri spurningu hvort mjölið í pokahorninu sé svo óhreint að ekki verði við unað. Hversu lengi ætli viðkomandi verði við völd og hvernig á herinn að geta starfað undir slíkum leiðtoga, sem greinilega ekki treystir þeim, er eiga að verja hann. Hann hefur nú þegar safnað saman meiri herafla en er í Afganistan, Írak svo dæmi sé tekið, þá er búið að setja herlög á allar stjórnarbyggingar í ríkjum bandaríkjanna. Ef óttinn er slíkur, er þá ekki augljóst að eitthvað er að, hvað varðaði nýafstaðnar kosningar. Það sem mig undraði var að fleiri gætu kosið en sem voru á kjörskrá, skyldi slíkt vera samþykkt hér á landi, held ekki!
Það er augljóst frá minni hálfu að Bandaríkin eru að sigla inn í að verða mesta bananalýðveldi í sögunni, þökk sé krötum. Ég held að almenningur sem aðhyllist lýðræði ætti að skoða sinn hug hvar sem er í heiminum, því krataheilkennið er greinilega hættulegt og ber að varast. Því miður hefur þetta heilkenni smitað inn í fjölda flokka þar sem fagurgalin segir eitt fyrir kosningar, en framkvæmir jafnvel hið gagnstæða eftir kosningar. Varist hildarleikin sem átt hefur sér stað í Bandaríkjunum, því hann á eftir að verða lýðræðinu um heim allan dýrkeypt.
Íslenska þjóðfylkingin stendur vörð um þína velferð og Íslenska menningu, en við erum ekki fagur galar sem svíkjum land og þjóð!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Demókrataflokkurinn og þó einkum forusta hans hafa gengið glæpsamlega fram og er almenningur í Bandaríkjunum farnir að sjá í gegnum þetta lið. Trump vann kosningarnar með miklum mun, en glæpsamlegt athæfi demókrata með hjálp erlendra aðila þar á meðal Kínverja stálu kosningunum. Ekki skrítið að þetta fólk þurfi í sífellu að líta um öxl, það hræðist allt og alla.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.1.2021 kl. 12:03

2 Smámynd: Guðmundur Karl Þorleifsson

Það er rétt hjá þér Tómás, og hættan af slíkri háttsemi sem er látin við gangast er misbeiting valds sé réttlætanleg, þó ef til vill séru háar peningagreiðslur þar að baki.  Biten er strax farin að koma með sínar yfirlýsingar, þar sem meðal annars á að hætta við langningu olíu og gasleiðslu frá Alaska, þar sem margir hafa haft vinnu, og þessi ákvörðun ein og sér kemur til með að hækka orkuverð í Bandaríkjunum til mikilla muna, sem bitnar helst á þeim sem minna hafa á milli handa sinna.  

Guðmundur Karl Þorleifsson, 18.1.2021 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband