19.3.2020 | 17:57
Nú hefur ESB sýnt sitt rétta andlit, en og aftur.
Nú kemur aftur fram hversu ESB er ekkert annað en slóttugt mein til að eiga samskipti við. Hér opinberast afstaða þeirra gangvart Íslendingum, það er að mergsjúga og misnota landið og það samfélag hér býr. Þetta birtist í afstöðu þeirra er varðar stopp á viðskipti með heilbrigðistengdar vörur til landsins. Hvað næst? Það heyrist ekki hátt í Viðreisnar mafíunni né Samfylkingar undirlægu liðinu núna, en þeirra markmið hefur verið og er en að troða Íslandi inn í þetta sökkvandi skip, þar sem mottóið er að misnota allt og alla. !!!! Vaknið Íslendingar það er löngu tímabært að segja okkur úr Schengen og EES samstarfinu, það er verið hægt og bítandi að nauðga þjóðinni, með fulltingi ofangreindra flokka.
Það kann vel að vera að COVID-19 veiran sé vandamál, en ESB er miklu meira vandamál en sú veira kemur nokkur tíma til með að vera. Það er komin tími til að háttvirt ríkisstjórn átti sig á málinu og taki beinskeytta afstöðu í málinu, þar sem framkoma ESB gangvart Íslendingum verði mótmælt með úrsögn, bæði hvað varðar opin landamæri og úr EES.
Það er komin tími til að Íslensk stjórnvöld horfi víðar, með heildar hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi en eru ekki fastir í forneskjulegum tollabandalögum. Hættum sérhagsmunagæslu, setjum þjóðina, menningu og arfleið í fyrsta sæti, þá mun okkur farnast vel.
Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 39081
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.