21.5.2019 | 07:37
Hvar var Flokkur fólksins í gær!!!!!
Þegar skoðað er framkoma Flokk fólksins í Orkupakkamálinu, er greinilegt að þau ganga undir fölsku flaggi. Flokkur fólksins kaus með meirihluta að taka málið úr nefnd. Nú sést hvergi í harða gagnrýni á málið í þingsölum alþingis, þrátt fyrir að Miðflokkurinn eini flokka reyni að koma vitinu fyrir þingheim.
Ekki vantaði að Inga Sæland tróð sér upp á Austurvelli til að sýnast að manni finnst vera á móti málinu, en annað er að sjá á þingi. Þeirra framlag með Miðflokknum er eina leið þeirra til að sýna að þeim sé alvara með að koma í veg fyrir innleiðinguna, það gæti leitt fleiri til að taka til máls, svo því yrði frestað fram á haust. Þá myndi alla veganna koma tími til að fara ofan í kjölinn á framferði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur ef hún yrði þá við líði.
Íslendingar skora á þingmenn að standa með þjóðinni, 80% hennar er á móti þessari innleiðingu.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 77
- Frá upphafi: 38628
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 70
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.