23.2.2019 | 10:06
Nú er komið að ögurstund hvað varðar sjálfstæði Íslendinga.
Á næstunni verður lagt fram frumvarp til laga að taka upp lög frá EB um innleiðingu orkupakka 3. Það hefur verið ljóst lengi að Guðlaugur Þór utanríkisráðherra og Sigríður Andersen dómsmálaráðherra ásamt fleirum innan Sjálfstæðisflokksins að þau munu samþykkja þennan gjörning. Spurningin er um restina af ríkisstjórninni, hver þeirra stefna sé og hvort ríkisstjórn landsins sem og alþingismenn, séu tilbúin að fara á sveig við stjórnaskrá landsins eins og hún sé einskinsvert plagg. Hér er augljóst að það er verið að afsala ráðstöfunarrétti til EB, sem brýtur í bága við Íslensku stjórnaskránna.
Hvað mun þessi afsalsgjörningur stjórnar leiða yfir þjóðina, ættum við að staldra við og kynna okkur hvað hefur gerst hjá nágrönnum okkar Norðmönnum. Jú síðan þetta var innleitt hjá Norðmönnum hefur raforkuverð hækkað um 216%, þar af á síðasta ári um 83,2%. Eru Íslendingar tilbúnir til að afsala sér auðlindum landsins, greiða hærra orkuverð og verða nýlenduþrælar EB veldisins. Hvert stefna ráðamenn þjóðarinnar með þessu, þegar aumingjatal þeirra er slíkt að ekki sé hægt að greiða mannsæmandi laun í landinu, bjóða hækkun upp á rúmar 6000kr sem ekki yrðu komnar til fullra framkvæmda fyrr en að þremur árum liðnum. Ætlast sömu valdhafar til að þeir sem ekki hafi nægjanleg laun til framfærslu, að þeir geti borið orkuverðshækkanir upp á 215%, og þá er ekki með talið þær 51,3% hækkanir sem til þyrfti til að geta fætt raforkuna í gegnum sæstreng til Evrópu.
Við í Íslensku þjóðfylkingunni höfnum slíku ráðabruggi, það er tími til komin að alþingismenn fari að vinna fyrir þjóðina, en hætti í gæluverkefnum nýlenduherra kúgara og EB veldisins.
Guðmundur Karl Þorleifsson formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.