17.8.2018 | 10:16
Ætla Íslendingar að selja sálu sína?
Nú er svo komið að áróðursvélar þeirra sem vilja selja landið til ESB,
eru komnar á þvílíkt skrið, að það setur þeim engin mörk. Eftir
jarðakaupa umræðuna er komin á fljúgandi ferð heilaþvottur fyrir því að
Íslendingar afsali sér yfirráðum yfir orkuauðlindum, orkuframleiðslu og
orkusölumálum til ESB með innleiðingu þriðja pakka orkumálatilskipunnar
ESB. Hér er á ferð hreint afsal á fullveldi þjóðarinnar og er með
eindæmum að einhver skuli leggja þessu lið, hvað þá að æðstu ráðamenn
þjóðarinnar sem eiga að gæta hagsmuna þjóðarinnar, standi í farabroddi.
Til að leggja enn fremur áherslu á málið er kölluð til fyrrverandi
ráðherra úr stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigurðssonar
sem vildu troða upp á okkur icesave skuldbindingum, en hér er á
ferðinni Ragna Árnadóttir sem er og hefur verið hvatamaður fyrir
inngöngu í ESB og innlimun landsins undir Evrópusambandið. Þetta kom en
og aftur fram á fundi sem haldin var um þessi mál, þar sem hún var einn
af talsmönnum þess að samþykkja orkupakkann.
Núna skal troða þessu enn fastar ofan í kok á Íslendingum, þar sem
kallaður er til Marie Eriksen Söreide utanríkisráðherra Noregs, sem eru
með allt niður um sig í þessum orkumálum, enda búnir að selja sálu sína
til ESB og hafa allt aðra hagsmuni en við Íslendingar í þessum geira.
Ætli Norðmenn séu henni sammála nú þegar orkuverð í Noregi hefur hækkað
um 50% á stuttum tíma í sumar og þar er orðið eitt dýrasta verð á
raforku í Evrópu. Ætli Norðmenn og Sádar myndu taka það í mál að selja
olíuauðlindir sínar til ESB, það er sambærilegt og farið er fram á að
gert sé hér gagnvart Íslendingum. Nei! er svarið. Íslenska
þjóðfylkingin hafnar öllum tilraunum sem eru unnar að því markmiði að
afsala gæðum íslenskra auðlinda og réttindum til annarra stjórnvalda,
þar með talið til ESB.
Íslenska þjóðfylkingin hafnar innleiðingu þriðja pakka orkumála ESB, og
þar með afsali á auðlindum þjóðarinnar. Nú er tími til að standa saman
og láta í sér heyra, það gerum við ekki eftirá, þá verður það of seint í
rassinn gripið.
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.