Vanvirðing þingmanna á Þingvöllum.

Enn er þetta Samfylkingarhyski þjóðinni til skammar. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar sýndi Danskri þjóð og þingi opinberan dónaskap með að yfirgefa fundinn á Þingvöllum er Pia Kjærsgaard hélt ræðu sína sem fulltrúi Dana. Hér og aftur sýndi Helga þá fasísku mynd Samfylkingarinnar, að ef einhver er á annarri skoðun en Samfylkingin þá ber að koma í veg fyrir að viðkomandi geti tjáð sig, slíkt er offorsið innan viðkomandi hreyfingar.
Nú hefur Helga Vala komið því inn á vettvang norðurlandanna að aðrar þjóðir eða flokkar, geti boðið upp á viðlík mótmæli það er að segja, verði fasískur Samfylkingarmaður sendur til að vera fulltrúi Íslands, sé það eðlilegt að fulltrúar standi upp og víki fund, og munu þeir þar með sýna viðkomandi fulltrúa okkar Íslendinga sambærilega vandlætingu eins og Helga Vala Helgadóttir alþingismaður er brautryðjandi að.
Þá ætla ég ekki að sleppa Pírötum sem aðhyllast samskonar fasisma og Samfylkingar lýðurinn, enda NO BORDERS liðar að upplagi. Þeim datt sú snjalla hugmynd að mæta ekki á fundinn til að mótmæla Piu Kjærsgaard föðurlands vini, enda í ekki í anda þeirra. Nú er Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata, formaður nefndar á vegum Norðurlandanna. Ætli hún hafi hugsað út í að fulltrúar hinna norðurlandanna gætu staðið upp og yfirgefið fundarsalinn þegar hún hæfi máls á þeim forsendum að um fasískan fulltrúa væri að ræða. Eru þetta virkilega skilaboðin sem við viljum senda út í heim, að hér séu svo arfavitlausir og lítt þroskaðir stjórnmálamenn að það sé ekki hægt að eiga samskipti við þá.
Ef þessir þingmenn hefðu einhverja sómatilfinningu myndu þeir segja af sér þingmennsku og biðja þjóðina afsökunar, en það er vitað mál að það myndu þeir aldrei gera, enda ekki með þroska til þess.
Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband