Hvers vegna þarf leynihyggju um fólk sem óskar eftir ríkisborgararétti?

UntitledÞað er ekki á stjórnvöld logið, þegar kemur að spillingu! Í fréttum á Vísi (https://www.visir.is/g/20242587119d/virkja-leyni-her-bergi-al-thingis-vegna-frum-varps-um-rikis-borgara-rett ) er fjallað um að forseti alþingis hafi virkjað leyniherbergi Alþingis vegna fumvarps um ríkisborgararétt! Hverju er verið að leyna, hvers vegna mega ekki að minnsta kosti alþingismenn er þurfa að veita atkvæði um þá sem veitt er ríkisborgararétt, atkvæði sitt eða geta hafnað þeim sem sækja um það. Telur meirihluti alþingis að hann sé svo traustverðugur að honum sé treystandi til að ákveða slíkt með þeirri leynihyggju sem greinilega á sér stað um slík málefni er varða alla þjóðina. Er þetta ef til vill ástæða þess að allmörgum hefur verið hleypt hér inn sem hingað hafa ekkert að gera og leggjast upp á þjóðina með ærnum kostnaði, svo miklum að ríkisstjórnin er búin að eyða öllum sparnaði sem í sjóðum hefur safnað og hafa þurft að skerða bætur til aldraða og öryrkja, mér er bara spurn? Er ekki komin tími til að slíkar upplýsingar séu opinberar, þannig að fólk geti metið framferði alþingismanna, hvort þeim sé treystandi eða ekki! Ég tel að það sé löngu komin tími til að þingheimur krefjist þess ásamt landsmönnum að allar slíkar ákvarðanir séu opinberar, annað vekur upp tortryggni í garð alþingis og þeirra er þar starfa. Við höfum séð til þeirra sem hafa fengið flýtimeðferð alþingis inn í landið, og meðvirkni stjórnenda, ekki aðeins alþingismanna heldur einnig bæjarstjórnarmanna á borð við bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Hversu lágt er hægt að ganga þegar bæjarstjórnamenn flagga á þjóðhátíðardegi Íslands í tilefni 80 ára afmæli fullveldisins, aðeins einum Íslenskum fána í fánaborgum en fjölda Palistínu og Hamas fánum. Voru fulltrúar Mosfellsbæjar að fagna morðunum á saklausum ungmennum þann 7 október 2023. Hvað hefði verið sagt ef þessir fánar hefðu verið þjóðfánar Ísraels, held að sumir meðvirkar arabasleikjur hefðu varla haldið vatni yfir slíku! Ég tel að þegar okkur Íslendingum er misboðið eins og þessir tvær umfjallanir hér að ofan fjalla um, er rétt að ráðamenn þjóðarinnar fari að hugsa sinn gang áður en óöld á borð við það sem á sér stað í nágrannalöndum okkar verður að veruleika, nema það sé einmitt áætlun þeirra að gera? Lifið heil, Íslendingar við þurfum að fara að vakna af okkar Þyrnirósarsvefni, annars fljótum við að feigðarósi og engin getur eða vill bjarga okkur.


Eru stjórnmálamenn og Íslenskir kjósendur komnir með minnisglöp?

Það er merkilegt þegar nú hefur farið í gegnum þingið breyting á útlendingarlögum, er voru arfavitlaus frá byrjun, og Íslenska þjóðfylkingin varaði við frá upphafi og var í reynd stofnuð vegna þessa máls. Fólk úr hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins, úr ýmsum flokkum og með ólíkar skoðanir um hin ýmsu mál, er vörðuðu okkar samfélag, náðu að mynda hóp sem gagnrýndi þau áform sem gengu undir “ Nýju útlendingar löginn“, en þau voru sett saman í einn graut til að villa um fyrir almenningi, það var að í þau voru fléttuð lög er vörðuðu vinnu og atvinnu réttindi á Íslandi, fólk í tímabundinni atvinnuleit, fólk sem kom frá stríðshrjáðum löndum og hælisleitendur! Af hverju ætli þessu hafi verið steypt í sama grautinn, jú gömlu löginn virkuðu þannig að þau voru hamlandi og komu í veg fyrir að hægt væri að misnota þau eins og komið hefur á daginn að gert er með núverandi lagabálk. Þetta var einmitt það sem félagar í Íslensku þjóðfylkingunni vöruðu við frá upphafi, en undir stjórn Sigmundar Davíðs og Eygló Harðardóttur ( hinni góðu ) voru þessi arfavitlausu lög kýld í gegn með samþykki alls alþingis að undanskildum nokkrum óróðaseggjum!
Ég hef ekki á skrá hjá mér hversu oft hefur þurft að breyta þessum lögum, en enn og aftur hefur það skeð í rétta átt og boðað hefur verið að það þurfi að gera enn betur á komandi haust þingi. Það ætti þess vegna að vera lýðnum ljóst að varúðar orð Íslensku þjóðfylkingarinnar voru orð í tíma töluð þó svo að þjóðin hafi skotið skolla eyrum við þeirri staðreynd að lögin voru og eru stór gölluð, hættuleg samfélaginu og hafa kostað samfélagið tugi milljarða í stríðsskaðabætur ef svo mætti að orði komast og ekki útséð hver heildar kostnaður verður á þessu heimskulegasta lagaboði sem hefur farið í gegnum alþingi Íslendinga! En viti menn þeir sem vöruðu við þessari þróun frá upphafi, máttu þola niðurlægjandi orðaflaum og voru uppnefndir ekki einungis af alþingismönnum og fréttamönnum, heldur af samlöndum sínum sem „ rasista, fasista og þar fram eftir götunum“.
Ég hef ekki orðið var við að nokkur alþingismaður né stjórnmálaafl, né heldur fréttamenn hafi viðurkennt mistök sín, né beðið þá afsökunar er vöruðu við þessum gjörningi, en stunda nú bútasaum á hriplegu segli sem aldrei verður fugl né fiskur, fyrr en búið er að aðskilja þennan málaflokk í greiningar eftir gerð og tilgangi umsókna. Ísland er rekið með halla og því er tímabært að loka landinu fyrir flóttafólki þar til að þeir sem eiga að stjórna landinu eru búnir að koma þjóðarskútunni á réttan kjöl!

Er ásættanlegt að kjósa flokka er treysta sér ekki til að taka afstöðu til málefna?

Ég skal fyllilega viðurkenna að ég hef ekkert álit á þeim flokkum sem sitja hjá við afgreiðslu mikilvægra mála á borð við útlendingamál, og virði meira að segja Pírata meira fyrir að standa með sinni skoðun, þó landráða stefna þeirra og eyðileggingaráform gagnvart Íslensku samfélagi sé mér ekki að skapi!
Hvernig ætlast flokkar sem skarta nú mikilli fylkisaukningu það er Samfylking og Viðreisn, að fólk treysti þeim gangvart hagsæld þjóðarinnar ef þeir treysta sér ekki til að taka á mikilvægum málum á borð við útlendingamál þjóðarinnar. Getur það verið vegna þess að þeir vilja ekki styggja neinn, en ætla að ná atkvæðum þeirra svo þeir komist að kjötkötlunum á alþingi íslendinga og get þar af leiðandi fleygt þjóðinni inn í ESB án þess að það yrði borið undir þjóðina! Hvernig á að vera hægt að treysta slíku fólki, ekki einn sýndi hugrekki til að taka afstöðu til málsins, þvílíkar mannleysur eru greinilega á þingi fyrir þessa flokka.
Það er greinilegt að komin er tími fyrir þjóðernissinnaða Íslendinga að fylgja liði og koma í veg fyrir að landinu verði úthlutað til einhverja gæðinga úti í heimi, því greinilegt er að þessir flokkar eru ekki og koma ekki til með að hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Það þarf að koma hér öflugur flokkur sem neglir niður samfélagið, þannig að hagsmunum þjóðarinnar verði ávalt í farabroddi en ekki sjálftaka og skammtíma hugsun, er leiðir framtíð afkomenda okkar í glötun!


Eru menn ekki í lagi!

Ég skrifa þetta vegna fréttar á mbl.is í dag þann 13 júni 2024. Hér mætir framkvæmdarstjóri Running Tide, Kristinn Árni L. Hróbjartsson, klæddur peisu með Bandaríska fánanum á og ætlast til að einhverjir fari að greiða fyrir CO2 bindingu og ætlast einnig til að annað hvort ríki, fyrirtæki og eða yfir skattlagður almenningur sé skattlagður en meira svo hann geti rekið sýndarfyrirtæki, er ekkert skapar, gerir ekkert gagn og er einungis tímaeyðsla.
Ég hef skrifað það áður að það vantar meira CO2 í andrúmsloftið svo gróður fái eðlilegt magn til að vinna úr og geti aukið O – súrefnisígildi meira en nú er. Það myndi gera jörðina grænni, umhverfið betra til búskapar og eða til að dýr merkurinnar myndu dafna enn frekar og ekki síst að stór hluti eyðimerkur myndi verða grasivaxnar en ekki auðn sem veldur bæði fólki sem og dýrum skaða. Við skulum gera okkur grein fyrir að þessi áróður sem viðkomandi háskóla grænjaxlar hafa haldið fram er einungis peningaplokk sem notuð er til eigin nota en gerir hvorki gang né hefur nokkurn tilgang.
Á tímum risaeðla er samkvæmt gögnum úr jarðlögum, vísbending um að CO2 hafi verið í mun meira mæli í andrúmslofti, en þá var einnig mikill gróður sem gerði lífs viðurværi mun betra en nú er, þá voru dýr mun stærri og sterkari, er átti einnig við um mannskepnuna, samkvæmt fornleifagreftri víða um lönd, en vegna einhvers einkennilegs forræðishyggju stjórnmálamanna voru allar slíkar upplýsingar þaggaðar niður eins og átti að gera er risarnir fundust í Kanada, en þökk sé snjallsímum og þeim myndavélum sem í þeim eru að búið var að mynda uppgröftinn og deila honum um allan heim, svo þöggunin hefði einungis orðið hlægileg!
Þá er ég ekki að segja að CO2 sé ekki skaðlegt í miklu magni, en það eru einnig aðrar lofttegundir. Okkar mengun á okkar plánetu er svo lítil að hún breytir engu í sambandi við hlýnun jarðar, þar er fyrst og fremst um að ræða færslu sporbaugs jarðar í hringum sólu og hversu mikil virkni sólgosa er á hverju tímabili. Við það getum við mannfólkið ekkert ráðið og ættu þess í stað að beita okkur í að minka sóðaskap fólksins, og þá helst ýmsa mengun frá nýtingu hinna ýmissa náttúruauðlinda, og er þar plast sennilega mesti skaðvaldur ásamt kjarnorkuúrgangi sem hefur verið fleygt í hafið í slíku magni að hætta getur skapast af bæði fyrir menn og málleysingja!


Eru ráðherrar landsins að fara fram með landráð?

Við skulum skoða málið aðeins betur! Hvert er starf ráðherra? Hverjar eru hans vinnuskyldur, hvaða lagaumhverfi á hann að fara eftir og hvað er verksvið viðkomandi.
Er von að spurt sé? Nú hafa hver ráðherrann á fætur öðrum stigið fram með sínar skoðanir að leiðarljósi en ekki samkvæmt stjórnskipun landsins. Þegar ráðherra tekur við starfi sem ráðherra viðkomandi verkefnis, ber honum að fara eftir þeim lögum sem í gildi eru og hlutast til um að viðkomandi ráðuneyti gæti þess til hins ýtrasta að hlutast til um að landsmenn fylgi þeim reglum sem stjórnvöld hafa sett í lög og ráðuneytið sýni gott fordæmi og geri slíkt hið sama. Ráðherra getur ekki og má ekki fara fram með sínar skoðanir, heldur er hann eins og hver annar ríkisstarfsmaður sem framfylgir ákveðnum reglum og starflýsingu, óháð sínum skoðunum. Hann má ekki tefja né beita neinum brögðum til að ná sínum skoðunum fram sem ráðherra og þarf að gæta hlutleysis gagnvart öllum þegnum sem og fyrirtækjum í sínum embættisfærslum. Að þessu sögðu er greinilegt að verulegur misbrestur hefur orðið á embættisgjörningum nokkurra ráðherra í þessari ríkisstjórn. Við skulum fara yfir nokkur dæmi!
Þar er fyrst að nefna Svandísi Svavarsdóttur, sem ítrekað hefur verið uppvís að tefja og eða brjóta lög samkvæmt mati Umboðsmanns alþingis, er varðar hennar setur sem ráðherra, Sama á við um Katrínu Jakobsdóttur sem sat á leyfisveitingarumsögn til hvalveiða, án þess að afgreiða það á eðlilegur tímaramma. Og nú tók steininn úr þegar núverandi ekki ráðherra Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tafði leifið þannig að vandséð er hvort hægt sé að hefja viðkomandi veiðar á þessu ári, en gaf þær skýringar að töfin væri helst sú að hún væri á móti hvalveiðum. Ef þessar kerlingar geta ekki tekið á málum eiga þær að stía til hliðar og láta aðra taka við tímabundið, svo þær gætu þvegið hendur sínar af gjörningum en ekki fremja ef til vill lögbrot gegn fyrirtæki sem þær greinilega hafa persónulega óbeit á, en koma fram af óheilindum og skaða ef til vill þjóðfélagið um marga milljónir króna. Ég get ekki séð annað en að viðkomandi fyrirtæki fari í mál vegna þessarar stjórnvalds-klúðurs þriggja VG ráðherra og spurning er hvort þær séu ekki einnig skaðabótaskildar þar sem þær fara ef til vill út fyrir sitt verksvið! Þá er spurning hvort ekki þurfi að víkja viðkomandi ráðherra úr starfi þar sem hún er greinilega ekki starfi sínu vaxin!

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • Untitled
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar.png 2
  • Skoðannakönnun. Forsetakosningar
  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 38615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband