30.4.2024 | 11:13
Hvar er ríkissaksóknari og RSK
Allt þetta blasir við landsmönnum, viðkomandi manneskja er að sjálfsögðu Karen Kjartansdóttir, sem hefur farið víða þar sem mótmæli gegn réttarríkinu Íslandi hefur verið mótmælt af arabískum flóttafólki og hælisleitendum. Þetta er allt í boði núverandi forseta frambjóðenda Höllu Hrundar Loftsdóttur, sem menn telja svo saklausa og hafi ekkert komið nálægt pólitík.
En er fólk að bera það á borð að Halla Hrund Loftsdóttir sé ekki tengd pólitík, ef þetta varpar ekki hulinshjálminum af svikamillunni sem er jú að sjálfsögðu í boði Samfylkingarinnar, oft er flag undir fögru skinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2024 | 17:35
Nú er komið að því!
Svo fólk vakni, þá er verið leynt og ljóst að grafa undan lýðræðisríkjum og hinum frjálsa heim, sem við þekkjum hér á vesturlöndum og það versta er að þessir hópar hafa komið fólki fyrir í æðstu stöðum samfélaga til að geta beitt þvingunum og fjármunum til verksins. Ég geri mér grein fyrir að menn reka í róða stans við að lesa þetta, en því miður er hér um staðreyndir, sem enginn getur eftirá lagað fyrir þjóðina, hún þarf að gera það sjálf og það núna með að senda skýr skilaboð. Það er jú þægilegt að láta alltaf aðra sjá um að verja landið og vinna skítverkinn, en ef við töpum sjálfstæðinu vegna hugsunarleysi og leti, þá er ekki við aðra að sakast, þetta er þitt land og þitt val, þú þarft að kynna þér málin, hvernig þau í raun eru og hvað sé verið að gera á bak við skítugu tjöldin!
Það er merkilegt að flest allir forsetaframbjóðendurnir forðast að geta þess hvað þeir ætla að gera, þegar og ef þeir njóta fylgis til setur á Bessastöðum. Greinilegt er að flestir sækjast eftir að verða svipaðir vindhanar og fráfarandi forseti var, duglaus og hafði engan metnað til að laga veiklað samfélag, þó svo að verkin væru víða. Eina sem hann kom í verk var að merkja staðinn með sínu tákni það er í stað kross, lét hann setja minnismerki um sig það er vindhana á Kirkjuturninn.
Meðvirknin er slík að fréttamenn eru svo gagnlausir í viðtölum við frambjóðendur að þeir tala við þá eins og að vera í kaffisamsæti, þó hér sé um æðstu stöðu landsins og að nú sem aldrei fyrr liggur mikið undir að komandi forseti gefi ekki út yfirlýsingar eins og fráfarandi forseti gaf og var kosinn út á, â það var að hann ætlaði ekki að gera neitt hér væri einungis um þægilega inni vinnu að ræða sem kostar þjóðina margar milljónir á ári hverju! Eru við Íslendingar virkilega svo miklar aula sálir að við látum troða á okkur ekki einungis á skýtugum skónum heldur forugum landráða mykju einnig, eða ætlum við að velja einhvern sem kemur til með að standa í lappirnar og standa með landi og þjóð!
Lifið heil!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2024 | 12:23
Er alþingi og ríkisstjórnin endanlega búnir að missa niður um sig!
Ég er að vísu nýkomin að utan og brá í brún að nýgerður samningur um kaup Landsbankans á TM yrði rift með ærnum kostnaði fyrir ríkissjóð, jú það eru við kjósendur sem eiga að borga. Þá kemur misskertur einstaklingur sem komist á einhvern máta til valda sem ráðherra og vill að viðkomandi gjörningur verði seldur á tombóluverði til vina og vandamanna innan rányrkju elítunnar á Íslandi. Jú það á sem sagt að ganga tvisvar í vasa almennings og ræna milljörðum til handa gæðingunum! HVAÐ ER AÐ YKKUR SAMLANDAR MÍNIR, ÞAÐ HEFUR VERIÐ FARIÐ NIÐUR Á AUSTURVÖLL FYRIR MINNA TILEFNIS, EÐA ERU ÞIÐ AÐ VERÐA EINS OG FANGARNIR UNDIR ÆGIVALDI NASISTA OG ÞORIÐ EKKI AÐ ANDMÆLA NEINU!!!! Á þetta sem sagt að líðast, hvar er stjórnarandstaðan, er hún heillum horfin, eða eru þau orðin svo meðvirk í að ræna landsmenn að þeim dettur ekki í hug að mótmæla slíkum gjörningi. Ég legg til að alþingi stöðvi þennan framgang, og virki þennan óskapnað sem þegar er búið að framkvæma, geri TM að ríkisreknu tryggingarfélagi sem myndi verða í raun aðhaldsafl í að lækka tryggingar fyrir landsmenn. Það er löngu komin tími til að stjórnmálamenn hugsi út fyrir boxið og nýti það sem þegar hefur verið gert til handa landsmönnum öllum, jú þaðan eru jú peningarnir teknir sem verið er að kaupa viðkomandi fyrirtæki og sjálfsagt að það verði til heilla fyrir almenning og fyrirtæki í landinu. Þar með er ég ekki að segja að nota eigi TM til að rústa öðrum tryggingarfyrirtækjum í landinu, en komin tími til að tryggar verði á sambærilegu verði og í nágranna löndunum okkar og að elítan geti ekki sópað milljörðum í formi arð í eigin vasa. Þar með er ég ekki að segja að það þurfi ekki að vera arður af slíkum rekstri, en fyrr má nú rota en dauðrota almenning í landinu af græðgi fákeppni þjófa og ræningja landsins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Karl Þorleifsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 67
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 59
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar