Er vinstri vírusinn farin að ráðast á minnisstöðvar hins almenna borgara á Íslandi.

Miða við skoðanakannanir virðist hinn alræmdi vinstri vírus vera farin að láta á sér kræla hjá hinum almenna kjósanda á Íslandi. Þessi vírus lætur menn gleyma, að þau Katrín Júlíusdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Svandís Svafarsdóttir voru öll í þeirri stjórn ekki alls fyrir löngu, er sló skjaldborg utan um heimili landsmanna. Misskilningurinn var sá hjá landsmönnum að þeirri skjaldborg var ætluð fjármála stofnunum en ekki hinum almenna borgara þessa lands, með þeim afleiðingum að 9000 fjölskyldur voru bornar út á Guð og gaddinn. Þá voru einnig skattar hækkaðir og laun lækkuð, með því fororði að það væri tímabundið, en það er aldrei svo hjá vinstri mönnum, þrátt fyrir loforða flaum um að þeim sé einum treystandi til að gæta hagsmuna þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Nei! Þau bættu nefnilega um betur með hjálp svo ekki sé gleymt þeim er stóðu þeim við hlið Samfylkingarliðinu, Pírötum og Bjartri framtíð að arfavitlausum Útlendingalögum sem svo voru nefnd, og Íslenska þjóðfylkingin varaði við, og ætla að gera enn betur samkvæmt vitlausri lagasetningu alþingis nýverið.
„ Takið eftir“ það var hlegið að frammámönnum innan Íslensku þjóðfylkingarinnar er þeir vöruðu við afleiðingum þessara lagasetningar, hverjar afleiðingarnar yrðu og nú aðeins ári síðar hefur öll þau varnaðar orð orðið að veruleika utan eins, er mest var gert grín að. Það var nefnilega upphæðin sem Íslenska þjóðfylkingin taldi að á þessu ári færi kostnaðurinn upp í 2 til 4 milljarða. En viti menn reikna má að hann fari í 14 milljarða samkvæmt áreiðanlegum heimildum þegar allt er tekið inn í dæmið og ekki reynt að fela þessa arfavitlausu stefnu sem nú er við höfð.
Nú hrópar einhver upp fyrir sig, „ Vissi ég ekki, þetta eru rasistar!“. Nei Íslenska þjóðfylkingin hefur aldrei verið á móti útlendingum, vilja taka vel á móti ferða mönnum og styðja þá sem hingað koma á eðlilegum forsendum og eru tilbúnir að leggja þjóðinni lið í að byggja hér upp gott samfélag. En Íslenska þjóðfylkingin er á móti efnahagsflóttafólki sem kemur hér einungis til að leggjast upp á velferðakerfi okkar, kemur hér vegabréfalaust og er komin með ókeypis lögfræðiþjónustu, heilbrigðisþjónustu, húsnæði og vasapeninga, með því að segjast ætla að sækja um hæli. Þetta er að ske á meðan þeir sem minna mega sín og eru bræður okkar og systur líða skort, gista við misjafnar aðstæður og njóta ekki þessara hlunninda.
Það komin tími til að þú kjósandi góður gerir þér grein fyrir því að eini flokkurinn, sem í framboði er fyrir þessar kosningar og gætir fyrst hagsmuna þinna, er Íslenska þjóðfylkingin. Því er ÍÞ eina vírusvörnin gegn þessum alræmda vinstri vírus sem heltekur landsmenn nú um stundir og losar þig við miðju moðið.
Þennan vírus losnar þú við með því að setja X við E.
Guðmundur Karl Þorleifsson formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Karl Þorleifsson

Höfundur

Guðmundur Karl Þorleifsson
Guðmundur Karl Þorleifsson

Áhugamaður um þjóðfélagsumræður.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Spilling ríkisvaldsins
  • Áætlað hraunrennsli.
  • Untitled
  • Íslenski fáninn 001
  • Íslenski fáninn 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 227
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 217
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband